Menningarlíf: Skapandi afl í byggðaþróun?

Miðvikudaginn 4. desember kl. 14-17 verður haldin í Hofi ráðstefna um þátt menningar og sögu í vexti og viðgangi byggðar á Íslandi.

Aðalfyrirlesari er Menelaos Gkartzios sérfræðingur við Centre for Rural Economy við Háskólann í Newcastle sem hefur stýrt alþjóðlegum verkefnum sem snúast um að tengja listsköpun og menningarstarf með markvissum hætti við byggðaþróun og samfélagsuppbyggingu.

Hilda Jana Gísladóttir bæjarfulltrúi og formaður stjórnar Akureyrarstofu og Eyþings opnar ráðstefnuna.

Að auki verða flutt nokkur stutt erindi þar sem horft verður á viðfangsefnið frá fjölbreyttum sjónarhornum. Þar taka til máls:

  • Arnar Sigurðsson forstöðumaður Blábankans
  • Hörður Sigurbjarnarson einn stofnenda Norðursiglingar
  • Marta Nordal leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar
  • Reinhard Reynisson framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga
  • Tinna Guðmundsdóttir aðstoðarskólastjóri listadeildar Seyðisfjarðarskóla
  • Vigdís Másdóttir kynningarstjóri Listaháskóla Íslands
  • Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður Akureyrarstofu
  • Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands

Pallborðsumræður að fyrirlestrum loknum.

Fundarstjóri verður Jón Þór Kristjánsson verkefnisstjóri upplýsingamiðlunar á Akureyrarstofu.

Kaffiveitingar og allir hjartanlega velkomnir.

Ráðstefnan er samstarfsverkefni Akureyrarbæjar, Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, Eyþings, Háskólans á Akureyri og Menningarfélags Akureyrar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan