LÝSA - rokkhátíð samtalsins

LÝSA - rokkhátíð samtalsins verður haldin í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um næstu helgi, 7.- 8. september. LÝSA er upplýsandi hátíð þar sem hin ýmsu málefni samfélagsins verða í fyrirrúmi. Markmið hátíðarinnar er að efla samtalið um samfélagið, hvetja til upplýstrar umræðu og þannig skapa meira traust og skilning milli ólíkra aðila.

Yfir 50 félagasamtök standa fyrir 60 margvíslegum viðburðum og uppákomum á hátíðinni. Má þar nefna málstofur, örerindi, smiðjur og námskeið. Þá verður til staðar umræðutorg þar sem gestum og gangandi gefst kostur á að leita upplýsinga, kynna sér starfsemi og spjalla við fulltrúa stjórnmálaflokka og félagasamtaka. Landsþekktir skemmtikraftar og tónlistarmenn brjóta upp dagskránna með tónlist og uppistandi. Það verður því fjölbreytt og spennandi dagskrá þessa tvo daga.

Formleg setning LÝSU verður kl. 12 föstudaginn 7. september. Framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar og verkefnastjóri LÝSU, Þuríður Helga Kristjánsdóttir, býður gesti velkomna, Ólafur Stefánsson handboltahetja flytur stutta hugvekju og í kjölfarið mun forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir setja hátíðina formlega.

Fjölmörg viðfangsefni verða til umræðu á LÝSU og tengjast þau meðal annars atvinnu- og vinnumarkaðinum, heilbrigði, jafnrétti, menningu og listum, stjórnmálum, vísindarannsóknum, umhverfi og menntun. Skemmtidagskráin verður heldur ekki af lakari endanum en sem dæmi má nefna að Snorri Helgason tónlistarmaður mun leika nokkur lög af nýjustu plötu sinni, og rithöfundarnir Auður Jónsdóttir, Guðmundur Andri og Hallgrímur Helgason spjalla um hlutverk rithöfunda sem samfélagsrýna. Alþýðusamband Íslands og Starfsgreinasamband Íslands standa fyrir „Pubquiz verkalýðsins" á Götubarnum á föstudagskvöldinu, þar sem gestir geta látið reyna á kunnáttu sína um verkalýðsmál, dægurmál og ýmis önnur mál.

Ólafur Stefánsson heldur vinnustofu á laugardagsmorgninum þar sem farið er í blöndu af kundalíni, spuna og sagnamennsku, kirtan og hugleiðslu. Skáldið og rapparinn Kött Grá Pé heldur örsmiðju undir yfirskriftinni „Að skrifa og segja fokk, heilbrigð tjáskipti" þar sem hann fjallar um skriftir, manngæsku og tjáningu í bjöguðum skilningi. Undir lok hátíðarinnar á laugardeginum ætla Saga Garðars og Dóri DNA að skemmta gestum með uppistandi og í kjölfarið mun Saga stjórna svokallaðri Diskósúpu, þar sem almenningur hjálpast að við að útbúa súpu í boði 1862, Bakarísins við brúnna og Nettó, úr mat sem annars hefði verið sóað. Gestir geta gætt sér á Diskósúpunni við tóna frá Jónasi Sig.

Heimasíða LÝSU með nánari upplýsingum.

LÝSA er á Facebook.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan