Lokanir í Naustaborgum vegna framkvæmda

Rauðmerktar leiðir eru lokaðar.
Rauðmerktar leiðir eru lokaðar.

Framkvæmdir á vegum Landsnets vegna Hólasandslínu 3 eru að hefjast í Eyjafirði með lagningu ídráttarröra í jaðar Naustaflóa.

Vegna framkvæmdanna þarf að takmarka aðgengi að nokkrum göngu- og reiðleiðum í Naustaborgum. Frá og með deginum í dag, 13. október, verða rauðmerktar leiðir (sjá mynd) lokaðar. Áætlaður framkvæmdatími í Naustaborgum er um 4-5 vikur og má reikna með að lokanir vari þann tíma. 

Þrátt fyrir að umræddar leiðir verði lokaðar þá er hægt að velja úr öðrum fjölbreyttum leiðum þessa frábæra útivistarsvæðis. Hér er hægt að nálgast nánari upplýsingar um Naustaborgir. 

Hólasandslína 3 er ný 220kV raflína milli Akureyrar og Hólasands. Markmið framkvæmdarinnar er að bæta orkunýtingu, auka flutningsgetu og tryggja stöðugleika raforkukerfisins á Norður- og Austurlandi. Framkvæmdin er einnig mikilvæg fyrir flutningskerfi landsins í heild. Í Eyjafirði verður línan lögð sem jarðstrengur en loftlína frá vesturhlíð Vaðlaheiðar að Hólasandi.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan