Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar á Akureyri

Sigurvegarar voru Jóhann Valur Björnsson, Naustaskóla, Matthildur Ingimarsdóttir, Giljaskóla, og Arn…
Sigurvegarar voru Jóhann Valur Björnsson, Naustaskóla, Matthildur Ingimarsdóttir, Giljaskóla, og Arney Elva Valgeirsdóttir, Oddeyrarskóla.

Miðvikudaginn 10. mars fór lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fram í Kvosinni, sal Menntaskólans á Akureyri. Það eru nemendur 7. bekkja grunnskóla bæjarins sem taka þátt í keppninni ár hvert. Áður hafa skólarnir haldið forkeppni og valið tvo fulltrúa sína, auk varamanns.

Að þessu sinni voru skáld keppninnar Bergrún Íris Sævarsdóttir og Kristján frá Djúpalæk. Lesið var í þremur umferðum og í fyrstu umferð fluttu þátttakendur svipmyndir úr bók Bergrúnar Írisar, Kennarinn sem hvarf. Í annarri umferð voru lesin ljóð eftir Kristján frá Djúpalæk og í síðustu umferð valdi hver flytjandi sér ljóð til flutnings.

Upphafsdagur Stóru upplestrarkeppninnar er á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, ár hvert en það er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar. Fram að lokakeppni leggja nemendur og kennarar áherslu á að æfa upplestur og vanda framburð og huga vel að áherslum, túlkun og framkomu í ræðustóli.

Að venju voru nemendur sér og skólum sínum til mikils sóma þennan dag og dómarar hafa ekki verið öfundsverðir af því hlutskipti að velja einn fremur öðrum í verðlaunasæti. Eins og áður var það Ingibjörg Einarsdóttir sem var formaður dómnefndar en hún er einn af upphafsmönnum keppninnar, sem fór fyrst fram í Hafnarfirði fyrir tuttugu og fimm árum.

Ómissandi þáttur hátíðarinnar er tónlistarflutningur nemenda Tónlistarskólans á Akureyri. Tónlistarflytjendum og kennurum þeirra eru færðar bestu þakkir fyrir allan þeirra undirbúning og æfingar sem skiluðu sér í vönduðum og góðum flutningi.

Sigurvegarar Stóru upplestrarkeppninnar 2021 eru:

Jóhann Valur Björnsson, Naustaskóla
Matthildur Ingimarsdóttir, Giljaskóla
Arney Elva Valgeirsdóttir, Oddeyrarskóla

Smellið á myndirnar til að sjá stærri útgáfur og fletta á milli þeirra.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan