Local Food í Hofi

Félagið "Matur úr héraði á Norðurlandi" stendur fyrir matvælasýningunni "Local Food Festival" í glæsilegum húsakynnum Menningarhússins Hofs laugardaginn 16. mars frá kl. 13-18. 

Fjöldi fyrirtækja úr héraði kynnir vöru sína, markaðstorg verður á svæðinu, glæsilegt vínsvæði og æsispennandi kokkakeppni. Einnig mun iðnaðarsafnið sýna gamlan varning sem tengist matvælaiðnaðinum.

Eimur stendur fyrir málþingi á sviðinu í Hamraborg frá klukkan 13-14.30 undir yfirskriftinni "Tækifæri og takmarkanir". Þar verður fjallað um vaxandi þörf fyrir framleiðslu matvæla og möguleikana til nýtingar jarðhita við framleiðsluna og við frekari vinnslu matvæla.

Fyrirlesarar:

  • Snæbjörn Sigurðarson framkvæmdastjóri Eims: Tækifæri í fjölnýtingu jarðhita
  • Sigurður Markússon verkefnastjóri hjá Landsvirkjun: Orkufrek matvælaframleiðsla - ný stoð í grænu hagkerfi?
  • Arnar Freyr Jónsson rekstrarstjóri Silfurstjörnunnar: Landeldi á laxi í Öxarfirði með jarðhita
  • Christín Schröder skordýrabóndi á Húsavík: Að byggja upp skordýraræktun á Norðurlandi
  • Rannveig Björnsdóttir forseti Viðskipta- og raunvísindasviðs HA: Verðmætasköpun úr hliðarafurðum matvælaframleiðslu - tækifæri og takmarkanir

Að loknum fyrirlestrum verða pallborðsumræður.

Klúbbur matreiðslumeistara á Norðurlandi stendur fyrir kokkakeppni sem verður haldin í Hömrum og er henni skipt upp í þrjá flokka:

  • Nemakeppni þar sem keppendur útbúa rétt úr bleikju og blómkáli sem aðalhráefni og setja saman á 30 mínútum fyrir framan áhorfendur. Keppnin byrjar kl.13.30.
  • Kokkakeppni þar sem eldað er lamb á tvo vegu. Keppnin hefst kl. 14.30 og keppendur hafa 30 mínútur til að skila af sér fullbúnum rétti.
  • Eftirréttarkeppni hefst kl. 15.30 þar sem kokkar og bakarar útbúa eftirrétt sem inniheldur meðal annars Ricotta ost og vanillu. Keppendur hafa 30 mínútur til að setja réttinn saman.

Keppendur setja svo einn rétt til sýnis á borð fyrir framan stöðina sína og einn réttur fer á dómaraborðið. Dómarar dæma blint og vita því ekki hver á hvaða rétt.

Klukkan 17 hefst uppboð til styrktar Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis en þá gefst gestum tækifæri til þess að bjóða í matarboð fyrir allt að 10 manns þar sem kokkar úr Klúbbi Matreiðslumeistara á Norðurlandi munu sjá um veisluna.

Kynnir dagsins verður Villi vandræðaskáld.

Enginn aðgangseyrir er að hátíðinni í Hofi.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan