Ljósin tendruð á jólatrénu

Hátíðleg stund verður á Ráðhústorginu kl. 16 á laugardag þegar ljósin verða tendruð á jólatrénu.

Ákveðið var að halda í þá hefð að vinabæirnir Randers í Danmörku og Akureyri á Íslandi skiptist á jólakveðjum á aðventunni og er tréð afhent af sendiherra Danmerkur á Íslandi, Kirsten Rosenvold Geelan, þótt það hafi að þessu sinni verið fellt í bæjarlandinu til að minnka kolefnissporið. Kirsten flytur Akureyringum kveðju frá vinabænum Randers og að því búnu mun Elma Eysteinsdóttir bæjarfulltrúi segja nokkur orð. 

Jólasveinarnir verða að sjálfsögðu á staðnum og Barna- og æskulýðskórar Glerárkirkju undir stjórn Margrétar Árnadóttur syngja nokkur hátíðleg lög. Undirleik annast Valmar Väljaots. Loks hefja jólasveinarnir upp raust sína, syngja með áhorfendum og gefa börnunum hollt góðgæti.

Að þessu sinni er það Stefán Jens Tómasson, 3ja ára, sem tendrar ljósin á trénu fyrir hönd Norræna félagsins á Akureyri.

Áður en formleg dagskrá hefst eða frá kl. 15.45 mun Lúðrasveit Akureyrar undir stjórn Sóleyjar Bjarkar Einarsdóttur spila nokkur létt jólalög við sviðið.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan