Lítilsháttar breytingar á leiðakerfi SVA

Ákveðið hefur verið að gera lítilsháttar breytingar á leiðakerfi Strætisvagna Akureyrar og taka þær gildi fimmtudaginn 1. febrúar. Breytingarnar eru gerðar vegna ábendinga notenda á leið 5 og eiga þær að bæta þjónustu við starfsfólk sjúkrahússins á Akureyri og nemendur og starfsfólk VMA eftir kl. 15 á daginn.

Einnig eru gerðar örlitlar breytingar á leið 2 en þær snerta þó ekki brottfarartíma úr miðbæ heldur komutíma á nokkrum biðstöðvum.

Vonast er til að þessar breytingar bæti þjónustu við bæjarbúa nokkuð en nýju tímatöflurnar má sjá hér. Aðrar leiðir eru óbreyttar.

Nýjar leiðbækur er hægt að fá í Ráðhúsinu.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan