Líf og fjör í Vísindaskólanum

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri ávarpaði útskriftarnemendur.
Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri ávarpaði útskriftarnemendur.

Það var líf og fjör í hátíðarsal Háskólans á Akureyri á föstudaginn 23. júní en þá útskrifuðust alls 87 nemendur frá Vísindaskóla unga fólksins.

Vísindaskólinn stendur í eina viku og þetta er í þriðja skipti sem skólinn er haldinn. Að þessu sinni lærðu nemendur að búa til hljóðfæri, kynntu sér grunnatriði í forritun, unnu í tilraunaeldhúsi, lærðu grunnatriði í umhverfismálum og kynntu sér breytileika mannfólksins, með áherslu á við séum ekki öll eins.

Vísindaskólanum er ætlað að vekja áhuga ungs fólks á aldrinum 11-13 ára á námi á háskólastígi. Flest börnin koma frá Eyjafjarðarsvæðinu en einnig eru dæmi um að börn koma lengra að.

„Ég veit að afar og ömmur sem búa hér á Akureyri eru að fá barnabörn í heimsókn og eru þannig að slá tvær flugur í einu höggi. Njóta samveru með barnabörnum í eina viku og bjóða þeim upp á áhugaverða dagskrá í Vísindaskólanum“, segir Sigrún Stefánsdóttir, skólastjóri Vísindaskólans. 

Skólinn hefur frá upphafi fengið mikilvægan stuðning frá ýmsum aðilum í nærsamfélaginu og segir Sigrún hann ómetanlegan. Undirbúningur fyrir Vísindaskóla unga fólksins vorið 2018 er að hefjast.

Frétt og mynd af heimasíðu Háskólans á Akureyri.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan