Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar, fyrir hönd Akureyrarbæjar, óskar eftir tilboðum í brúarsmíði og frágang á Leikhúsbrú við Drottningabrautarstíg. Niðurrekstri staura og uppsteypu landstöpla verður lokið fyrir þetta útboð.
Helstu magntölur:
Staurafrágangur 52 stk
Tangir og krossstífur 46 sett
Dekkbitar 375 m
Dekkklæðing 340 m2
Handrið 180 m
Yfirbygging 70 m2
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 31. júlí 2018.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt hjá umsarekstur@akureyri.is frá 31. janúar 2018. Tilboðum skal skila á Umhverfis- og mannvirkjasvið, 4. hæð, eigi síðar en miðvikudaginn 14. febrúar kl. 11 og verða þau þá opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum, eða fulltrúum þeirra, sem þess óska.