Láttu þér líða vel - hugmyndir og ráð

Þrátt fyrir óvenjulegar aðstæður og takmarkanir þá skiptir verulegu máli að láta sér líða vel og gera það besta úr aðstæðum. Enn er hægt að gera ótrúlega margt skemmtilegt og uppbyggilegt sem má vel vekja athygli á. 

Nýtt vefsvæði hefur þess vegna verið útbúið hér á heimasíðunni, eins konar upplýsingasíða, þar sem teknar hafa verið saman nokkrar hugmyndir að því sem er gaman að gera í samkomubanni á Akureyri. Sérstök áhersla er lögð á útivist og hreyfingu en einnig á aðra afþreyingu, svo sem á vegum safnanna okkar, og ýmsa menningarviðburði í netheimum. Auk þess eru á síðunni góð ráð sem snúa að vellíðan, virkni og heimavinnu.

Síðan heitir einfaldlega Láttu þér líða vel og er aðgengileg hér. Jafnframt er hægt að nálgast síðuna með því að smella á Mannlíf á forsíðunni. 

Athugið að listinn er ekki tæmandi og verður uppfærður. 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan