Langtímaleigusvæði fyrir söluvagna í miðbæ Akureyrar 2022

Mynd: Auðunn Níelsson
Mynd: Auðunn Níelsson

Auglýst er eftir umsóknum um langtímaleigusvæði fyrir söluvagna í miðbæ Akureyrar fyrir árið 2022.

Í samþykkt Akureyrarbæjar um götu- og torgsölu eru afmörkuð svæði í miðbæ þar sem heimiluð er sölustarfsemi utandyra. Stæðin sem laus eru til umsóknar nú eru þrjú stæði fyrir söluvagna á tveimur svæðum. Forleiguréttur er í gildi fyrir umrædd svæði og hefur umsækjandi sem hefur haft leyfi frá fyrra ári forgang umfram aðra. Umsækjandi skal vera skuldlaus við Akureyrarbæ og skal hafa virt lögreglusamþykkt Akureyrarbæjar og samþykkt þessa við endurumsókn, að öðrum kosti fellur forleigurétturinn niður. Útgefin leyfi gilda í 6 eða 12 mánuði.

Umsækjendur skulu kynna sér samþykkt um götu- og torgsölu og fylgiskjöl hér og skila inn umsókn og tilskyldum gögnum í gegnum þjónustugátt fyrir 20. janúar 2022.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan