Kynningarfundur Vaxtarrýmis

Samstarfsverkefnið Norðanátt er hreyfiafl sem miðar að því að skapa kraftmikið nýsköpunarumhverfi á Norðurlandi og býður nú öðru sinni upp á öflugt Vaxtarrými í þar sem þátttakendur fá tækifæri til að efla sig og sín fyrirtæki og vaxa með vindinn í bakið.

Norðanátt leitar að þátttakendum, þ.e. frumkvöðlum, nýjum fyrirtækjum og nýsköpunarverkefnum innan rótgróinna fyrirtækja á Norðurlandi, sem eru komin af hugmyndastigi og vilja nýta Vaxtarrými Norðanáttarinnar til að vaxa og efla sig og sín verkefni.

Vaxtarrými er átta vikna viðskiptahraðall sem beinist að sjálfbærni, með áherslu á mat, vatn og orku, og er sérhannaður með þarfir þátttakendanna í huga. Teymin sem verða valin í viðskiptahraðalinn hafa því áhrif á þá fræðslu sem stendur þeim til boða.

Vaxtarrými fer að mestu leyti fram á netinu en teymin hittast fjórum sinnum meðan á verkefninu stendur á vinnustofum á völdum stöðum á Norðurlandi. Þátttakendur kynnast reynslumiklum leiðbeinendum, frumkvöðlum, fjárfestum og stjórnendum fyrirtækja á Norðurlandi og víðar á ráðgjafafundum, sitja vinnustofur og fræðslufundi og mynda sterkt tengslanet sín á milli.

Rafrænn kynningarfundur fer fram mánudaginn 12. september nk. frá kl. 11.30-12.00 þar sem farið verður yfir öll helstu atriði Vaxtarrýmis ásamt því að fólki gefst kostur á að spyrja spurninga.

Hlekkur á zoom: https://us02web.zoom.us/j/83553405875

Vaxtarrými hefst síðan 3. október og lýkur 24. nóvember.

Sótt er um á heimasíðu Norðanáttar - www.nordanatt.is.

Umsóknarfrestur er til og með 19. september.

Að verkefninu Norðanátt koma EIMUR, SSNV, SSNE og ráðgjafafyrirtækið RATA.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan