Klettaborg – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu í Klettaborg.
Skipulagssvæðið sem breytingum tekur liggur milli vestustu húsanna við Klettaborg og Dalsbrautar. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að afmörkuð er ný lóð fyrir íbúðakjarna með sex íbúðum. Fyrirhugað leiksvæði er flutt norður fyrir götuna.

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 30. maí til 12. júlí 2018, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig aðgengileg hér fyrir neðan.

Klettaborg - tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 fimmtudaginn 12. júlí 2018 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagssviðs Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagssvid@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

30. maí 2018
Sviðsstjóri skipulagssviðs

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan