Kjarnagata 2 – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Naustahverfis á svæði milli Kjarnagötu 2 og Miðhúsabrautar.
Í breytingunni felst að fyrirhuguð aðkoma að lóðinni Kjarnagata 2 frá Miðhúsabraut færist til vesturs auk þess sem nú er gert ráð fyrir bæði inn og útakstri frá lóðinni en ekki bara innakstri eins og í gildandi deiliskipulagi. Þá breytast mörk skipulagssvæðisins lítillega auk þess sem gert verður ráð fyrir miðeyju á hluta Miðhúsabrautar til að aðskilja aksturstefnu
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 9. ágúst til 20. september 2018, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig aðgengileg hér fyrir neðan.

Kjarnagata - tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 fimmtudaginn 20. september 2018 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagssviðs Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagssvid@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

9. ágúst 2018
Sviðsstjóri skipulagssviðs

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan