Kennari í Lundarskóla greindist með Covid-19

Kennari í 1. bekk í Lundarskóla á Akureyri hefur greinst með Covid-19. Nemendur í 1. bekk þurfa því að vera í sóttkví til föstudagsins 6. nóvember ásamt starfsfólki í sóttvarnarhólfinu þar sem kennarinn starfaði. Nemendur í 1. bekk sem voru ekki í skólanum á fimmtudag og föstudag þurfa ekki að fara í sóttkví.

Skólastjórnendur eru í nánu samstarfi við smitrakningarteymi um framhald málsins.

Brýnt er að allir sýni ítrustu varúð og setji persónulegar sóttvarnir í algjöran forgang. Notum andlitsgrímur, sprittum og þvoum hendur vel, forðumst fjölmenni og virðum ávallt 2ja metra regluna. Ef vart verður flensulíkra einkenna sem gætu bent til Covid-19 smits, er hægt að bóka sig í covid sýnatöku á heilsuvera.is.

Hlúum vel hvert að öðru, sýnum umburðarlyndi og æðruleysi í leik og starfi.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan