Jórunn Eydís ráðin skólastjóri Krógabóls

Jórunn Eydís Jóhannesdóttir hefur verið ráðin í starf skólastjóra leikskólans Krógabóls. Jórunn hefur starfað sem stjórnandi í Krógabóli síðastliðin 28 ár, fyrst sem deildarstjóri og síðar sem aðstoðarskólastjóri.

Jórunn tekur formlega við starfi skólastjóra 1. júní næstkomandi, en hún hefur gegnt starfinu um nokkurt skeið. Jórunni er óskað áframhaldandi velfarnaðar í starfi skólastjóra.

Anna Ragna Árnadóttir lætur af störfum og eru henni þökkuð vel unnin störf hjá Akureyrarbæ.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan