Jólakveðja frá bæjarstjóranum á Akureyri

Bæjarstjórinn á Akureyri sendir íbúum Akureyrar, Grímseyjar og Hríseyjar, sem og landsmönnum öllum, sínar bestu óskir um gleðileg jól:

Jólin eru hátíð ljóss og friðar, hátíð fjölskyldunnar og barnanna. Njótum indælla samverustunda með okkar nánustu yfir hátíðarnar en munum líka að jólin geta verið erfiður tími fyrir þá sem hafa misst ástvini eða orðið fyrir öðrum áföllum í lífinu. Verum þakklát fyrir það sem við höfum, verum nægjusöm og hugsum með hlýju til þeirra sem eiga um sárt að binda.

Ég sendi ykkur öllum mínar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Með kærri þökk fyrir ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða.

Ásthildur Sturludóttir,
bæjarstjóri á Akureyri

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan