Jólagluggi Akureyrar 2020

Þórgnýr Dýrfjörð og Jón M. Ragnarsson fyrir utan JMJ. Mynd; Skapti Hallgrímsson.
Þórgnýr Dýrfjörð og Jón M. Ragnarsson fyrir utan JMJ. Mynd; Skapti Hallgrímsson.

Herrafataverslunin JMJ bar sigur úr býtum í samkeppni um fallegasta og best skreytta verslunargluggann á Akureyri fyrir þessi jól.

Akureyrarstofa stóð fyrir keppninni og var markmiðið að vekja athygli á fjölbreyttu úrvali verslana í bænum og þeim metnaði sem lagður er í gluggaskreytingar. Íbúar og verslunareigendur voru hvattir til að senda inn tillögur með því að birta mynd á Instagram merkta #jólak2020.

Þótt margar verslanir séu vel skreyttar þá var þátttaka í keppninni heldur dræm, en nokkrar tilnefningar bárust sem þriggja manna dómnefnd lagði mat á. Einróma niðurstaða dómnefndar var sú að metnaðarfullar jólaskreytingar í gluggum JMJ stæðu upp úr. Löng hefð er fyrir veglegum gluggaskreytingum í versluninni sem stjórnendur hafa lagt áherslu á að varðveita, Akureyringum og gestum bæjarins til mikillar gleði.

Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður Akureyrarstofu tilkynnti starfsmönnum JMJ um niðurstöðuna fyrr í dag og færði þeim blómvönd í viðurkenningarskyni.

Til hamingju!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan