Jóla- og nýárskveðja frá bæjarstjóra

Mynd: María Helena Tryggvadóttir
Mynd: María Helena Tryggvadóttir

Hugheilar jóla – og nýársóskir til ykkar allra og einlægar þakkir fyrir frábærar móttökur á árinu sem er að líða. Megi árið 2019 verða ár nýrra og skemmtilegra tækifæra og áskoranna og verða ykkur öllum heillaríkt.   

Jólin 1891
Fullvel man ég fimmtíu ára sól,
fullvel meir en hálfrar aldar jól,
man það fyrst, er sviptur allri sút
sat ég barn með rauðan vasaklút.

Kertin brunnu bjart í lágum snúð,
bræður fjórir áttu ljósin prúð,
mamma settist sjálf við okkar borð;
sjáið, enn þá man ég hennar orð:

Þessa hátíð gefur okkur Guð,
Guð, hann skapar allan lífsfögnuð,
án hans gæsku aldrei sprytti rós,
án hans náðar dæi sérhvert ljóð.

Þessi ljós, sem gleðja ykkar geð,
Guð hefir kveikt, svo dýrð hans gætuð séð;
jólagleðin ljúfa lausnarans
leiðir okkur nú að jötu hans.?

Síðan hóf hún heilög sagnamál,
himnesk birta skein í okkar sál;
aldrei skyn né skilningskraftur minn
skildi betur jólaboðskapinn.
(MJ)

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan