Jaðarsvöllur - Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu sem nær til hluta Jaðarsvallar.
Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir að á 18,5 ha svæði á suðvestanverðu golfvallarsvæðinu verði haugsett allt að 500.000 m³ af jarðvegi á næstu 20-30 árum sem nýtist sem undirbygging fyrir nýjan 9 holu golfvöll.
Hægt er að skoða tillöguna hér að neðan:

Uppdráttur

Greinargerð

Frestur til að gera athugasemd við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 12. ágúst 2020 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagssviðs Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagssvid@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

1. júlí 2020
Sviðsstjóri skipulagssviðs

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan