Innritun nemenda í 1. bekk í grunnskóla

Í febrúar fer fram innritun nemenda sem hefja nám í 1. bekk í grunnskólum Akureyrarbæjar haustið 2020. Sótt er um grunnskóla í þjónustugátt Akureyrarbæjar, en með því að smella hér er hægt að komast beint inn í umsóknarformið. 

Finna má allar upplýsingar um skólaval á Akureyri á heimasíðu fræðslusviðs. 

Hver skóli verður með kynningu, opið hús, fyrir foreldra barna sem hefja nám í grunnskólum í haust. Foreldrar eru hvattir til að kynna sér dag- og tímasetningar sem í boði eru og notfæra sér þetta tækifæri. 

Opin hús í grunnskólum: 

Miðvikudagur 12. febrúar kl. 9:00-11:00:

Giljaskóli - Naustaskóli - Oddeyrarskóli.

Fimmtudagur 13. febrúar kl. 9:00-11:00:

Brekkuskóli - Glerárskóli - Lundarskóli - Síðuskóli. 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan