Íbúum hefur fjölgað um 335 á einu ári

Miðbær Akureyrar. Ljósmynd: María Tryggvadóttir.
Miðbær Akureyrar. Ljósmynd: María Tryggvadóttir.

Íbúafjöldi Akureyrarbæjar þann 1. ágúst sl. var 19.436, samkvæmt tölum Þjóðskrár Íslands, og hafa íbúar sveitarfélagsins aldrei verið fleiri. Íbúum hefur undanfarna 12 mánuði fjölgað um 335.

Þjóðskrá birtir mánaðarlega upplýsingar um íbúafjölda sveitarfélaga og miðar breytingu við 1. desember. Á þessu tímabili, síðustu átta mánuði, fjölgaði íbúum Akureyrarbæjar um 219 eða 1,1% sem er á pari við hlutfallslega fjölgun landsmanna í heild.

Íbúafjöldi á Norðurlandi eystra í heild hefur aukist um 295 frá 1. desember sl. eða um 1%. Íbúum fækkaði í 24 sveitarfélögum af 69 á umræddu tímabili.

Ef litið er til síðustu 12 mánaða, frá 1. ágúst 2020, hefur hlutfallsleg fjölgun íbúa Akureyrarbæjar numið 1,8% samanborið við 1,4% á landsvísu.

Þessi þróun er afar ánægjuleg, enda tekur Akureyrarbær fagnandi á móti nýjum íbúum sem velja að njóta þeirra lífsgæði sem bjóðast í sveitarfélaginu og auðga um leið okkar góða samfélag.

Á vef Þjóðskrár er hægt að skoða nánar fjölda íbúa eftir sveitarfélögum og samanburð við fyrri ár.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan