Íbúakosning um skipulagsbreytingu á Oddeyri

Bæjarstjórn samþykkti í gær með 11 samhljóða atkvæðum að vísa breytingu á aðalskipulagi fyrir hluta Oddeyrar í íbúakosningu.

Svæðið afmarkast af Hjalteyrargötu í vestri, Kaldbaksgötu í austri, Gránufélagsgötu í norðri og Strandgötu í suðri. Samkvæmt tillögu sem var auglýst í janúar er gert ráð fyrir blandaðri byggð með 100-150 íbúðum í fjölbýlishúsum og atvinnustarfsemi á neðstu hæð í hluta þeirra. Dregið hefur verið úr hámarkshæð húsanna frá því breytingarnar voru fyrst kynntar, en samkvæmt auglýstri tillögu skulu byggingar ekki ná hærra en 25 m.y.s.

Íbúar hafa sýnt málinu mikinn áhuga og bárust alls um 100 athugasemdir við auglýsta tillögu.

Meirihluti skipulagsráðs lagði til við bæjarstjórn að samþykkja tillöguna með breytingum til að koma til móts við hluta athugasemda og umsagna. Í þeim felst að hámarkshæð húsa lækkar enn frekar, niður í 20 m.y.s., sem felur í sér að húsin geta verið 5-6 hæðir að hámarki en jafnframt eru sett inn ákvæði um að syðstu húsin megi að hámarki vera 4 hæðir.

Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum í gær að íbúar fái að kjósa um aðalskipulagsbreytinguna og lagði til að kosningin fari fram með rafrænum hætti í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar eigi síðar en 31. maí. Þessi ákvörðun er í samræmi við samstarfssáttmála bæjarstjórnar sem var undirritaður í september síðastliðnum.

Fyrir liggur að útfæra nánar fyrirkomulag kosningarinnar og verða nánari upplýsingar gerðar aðgengilegar þegar nær dregur. Rík áhersla verður lögð á að kynna málið vel fyrir íbúum, hvetja fólk til þátttöku og útskýra þá valkosti sem standa til boða.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan