Hreinsunarvika 2018

Sumar á Ráðhústorginu
Sumar á Ráðhústorginu

Akureyrarbær hvetur bæjarbúa til að taka höndum saman við að hreinsa til í bænum eftir veturinn og taka á móti sumrinu með brosi á vör.

Starfsmenn Akureyrarbæjar munu ekki fjarlægja garðaúrgang frá lóðarmörkum en gámar verða staðsettir í hverfum bæjarins frá 11.-22. maí.

Staðsetning gámanna verður á eftirtöldum stöðum:

  • Kaupangi
  • Hagkaup
  • Hrísalundi
  • Bónus við Kjarnagötu
  • Bónus Langholti
  • Bugðusíðu við leiksvæði
  • Aðalstræti sunnan Duggufjöru
  • Verslunarmiðstöðina Sunnuhlíð

Einnig er tekið við garðaúrgangi á gámasvæði við Réttarhvamm og á móttökustöðinni
Hlíðarvöllum við Rangárvelli, endurgjaldslaust á meðan hreinsunarvikan stendur yfir.

Í samvinnu við hestamenn verða gámar staðsettir í hesthúsahverfum bæjarins frá 11. – 22. maí.

Hvatning til dáða:

Akureyrarbær hefur stundum fengið sæmdarheitið "fegursti bær landsins" en til þess að hann verðskuldi það þurfa allir að leggjast á eitt og taka til í sínum ranni. Það er samfélagsleg skylda okkar sem í þessum bæ búa að ganga vel um og koma í veg fyrir sóðaskap sem hlýst af uppsöfnuðu rusli.

Með því að hreinsa rusl og snyrta tré og runna í garðinum okkar hvetjum við aðra til að taka til hendinni. Stígum skrefinu lengra og tínum rusl utan lóðarmarka, við næsta göngustíg og/eða á nálægu útivistarsvæði.
Hreinsunardagur í götunni eða í hverfinu býður upp á skemmtilega samveru. Notum hugmyndaflugið og gerum tiltektina að skemmtilegu verkefni.

Opnunartímar gámasvæðis við Réttarhvamm:

Vetraropnun
Frá 16. ágúst til 15. maí:
Mánudaga til föstudaga kl. 13:00-18:00.
Laugardaga og sunnudaga kl. 13:00-17:00.

Sumaropnun
Frá 16. maí til 15. ágúst:
Mánudaga til föstudaga kl. 13:00-20:00
Laugardaga og sunnudaga kl. 13:00-17:00.