Hreinsum eftir hátíðarnar

Þegar jólin eru liðin og jólatrén hafa þjónað sínu hlutverki skulum við hjálpast að við að koma þeim í réttan farveg. 

Í byrjun janúar verður gámum undir jólatré komið fyrir við báðar verslanir Bónus, Hagkaup og verslunarmiðstöðina Sunnuhlíð, við Kaupang og Hrísalund. Íbúar eru hvattir til að koma jólatrjám í þessa gáma þar sem þau verða ekki tekin við lóðarmörk.

Flugeldarusl í almennt sorp

Mikið rusl fellur til um áramót þegar miklu magni af flugeldum er skotið á loft. Á hverju ári hafa tómir flugeldakassar, spýtur og prik legið á víð og dreif um bæinn.

Íbúar og fyrirtæki eru beðin um að huga að nærumhverfi sínu og taka til eftir áramótagleðina, þar sem flugeldarusl verður ekki tekið upp við lóðarmörk

Flugeldaruslið á heima í almennu sorpi.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan