Höfðahlíð 2 – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir því að heimilt verði að byggja 4ja – 5 íbúða hús í stað 2ja íbúða húss. Heimilt er samkvæmt gildandi skipulagi að fjarlægja núverandi hús.

Hægt er að skoða tillöguna hér:

Breytingaruppdráttur

Frestur til að gera athugasemd við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 23. júní 2021. Athugasemdum er hægt að skila með tölvupósti (skipulagssvid@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram eða skriflega til skipulagssviðs í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9.

Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsingar hjá Akureyrarbæ 
Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem eru birtar á heimasíðu Akureyrarbæjar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan