Hlíðarfjall heimavöllur íslensku landsliðanna

Mynd: Ellert Örn Erlingsson deildarstjóri íþróttamála og Jón Viðar Þorvaldsson framkvæmdarstjóri SKÍ…
Mynd: Ellert Örn Erlingsson deildarstjóri íþróttamála og Jón Viðar Þorvaldsson framkvæmdarstjóri SKÍ handsala samninginn.

Í gær var undirritaður samningur um áframhaldandi samstarf á milli Skíðasambands Íslands (SKÍ) og Akureyrarbæjar. Framlag Akureyrarbæjar til samningsins er annars vegar að útvega SKÍ skrifstofuaðstöðu fyrir starfsstöð SKÍ og hins vegar að leggja fram skíðasvæðið í Hlíðarfjalli sem heimavöll íslensku landsliðanna á skíðum. Akureyrarbær mun í samvinnu við SKÍ kappkosta að hafa aðstæður sem bestar til æfinga á hverjum tíma. Með samstarfssamningnum eru báðir aðilar að leggja sitt af mörkum til að auka enn frekar framgang skíðaíþróttarinnar á Íslandi og bæta aðstæður til iðkunnar hennar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan