Hjalteyrargata lokuð að hluta

Hjalteyrargata, milli Tryggvabrautar og Furuvalla, verður lokuð til suðurs vegna framkvæmda miðvikudaginn 15. janúar og fimmtudaginn 16. janúar. Áður hafði verið auglýst að lokað yrði á morgun, þriðjudag, en því hefur verið frestað um sólarhring vegna veðurútlits. 

Lokunarskiltum og upplýsingum um hjáleiðir verður komið upp á níu stöðum í bænum, einkum í næsta nágrenni við framkvæmdasvæðið.

Íbúar og aðrir vegfarendur eru beðnir velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan