Hesjuvellir – Tillaga að deiliskipulagi

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 19. desember 2017 samþykkt að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Hesjuvelli skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagssvæðið nær til Hesjuvalla landnr. 212076, sem liggur neðan Lögmannshlíðarvegar.

Tillagan gerir m.a. ráð fyrir 350 m2 einbýlishúsi ásamt bílgeymslu. Skógrækt er á landinu að öðru leiti.

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð liggur frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 10. janúar til 21. febrúar 2018, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er aðgengileg hér að neðan:

Hesjuvellir - tillaga að deiliskipulgi

Fornleifaskráning

Frestur til að gera athugasemdir rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 21. febrúar 2018 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagssviðs Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagssvid@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

10. janúar 2018
Sviðsstjóri skipulagssviðs

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan