Heilbrigðisstofnun Norðurlands tekur tímabundið við rekstri Öldrunarheimila Akureyrar

Hlíð
Hlíð

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fela Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) að taka tímabundið við rekstri Öldrunarheimila Akureyrar (ÖA) frá og með næstu áramótum.

Lagt er allt kapp á að undirbúa þessa breytingu vandlega þannig að íbúar og aðstandendur verði ekki fyrir óþægindum.

Akureyrarbær hefur rekið ÖA sem hluta af velferðarþjónustu sveitarfélagsins samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands fyrir hönd ríkisins. Bæjarráð Akureyrarbæjar samþykkti fyrr á þessu ári að óska ekki eftir framlengingu á rekstrarsamningi sem rennur út 31. desember 2020.

Viðræður hafa undanfarna mánuði átt sér stað um rekstur hjúkrunarheimila á Akureyri þar sem megin áherslan hefur verið lögð á að standa vörð um gæði þjónustunnar og koma í veg fyrir óvissu á meðan unnið er að framtíðarskipan málaflokksins. Sú niðurstaða sem kynnt er í dag er mikilvægur liður í því. Á vegum heilbrigðisráðuneytisins er að hefjast vinna við úttekt á rekstri hjúkrunarheimila landsins og mun högun rekstrar til framtíðar taka mið af niðurstöðu þessarar úttektar. Nánar er sagt frá úttektinni á vef heilbrigðisráðuneytisins.

Breytt rekstrarfyrirkomulag hefur í för með sér að frá og með 1. janúar næstkomandi færast á þriðja hundrað starfsmenn ÖA frá Akureyrarbæ til HSN, en réttindi og kjör þeirra haldast óbreytt samkvæmt kjarasamningum sem eru í gildi. Öldrunarheimilin hafa lengi átt því láni að fagna að hafa frábært og reynslumikið starfsfólk innanborðs og er lögð rík áhersla á að það verði fyrir sem minnstum áhrifum af þessum breytingum.

ÖA reka heimili fyrir um 180 íbúa á tveimur stöðum á Akureyri, í Hlíð og Lögmannshlíð. Þau hafa verið í fararbroddi í þróun og nýsköpun í öldrunarþjónustu með áherslu á aukinn sveigjanleika og að mæta mismunandi þörfum notenda. Allir sem að málinu koma eru sammála um mikilvægi þess að halda áfram því góða starfi sem unnið hefur verið á Öldrunarheimilunum með það að leiðarljósi að veita áfram framúrskarandi þjónustu.

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri segist fagna þessari niðurstöðu enda sé tryggt að mikilvæg þjónusta ÖA skerðist ekki þegar núgildandi rekstrarsamningur rennur út. „Það skiptir Akureyrarbæ öllu máli að hlúa vel að eldra fólki og í öldrunarþjónustu felast mikil tækifæri til nýsköpunar. Þessi tækifæri er nauðsynlegt að grípa og þróa þjónustuna áfram til framtíðar. HSN er algjör lykilstofnun í okkar samfélagi sem við treystum vel til verksins,“ segir Ásthildur. 

María Heimisdóttir forstjóri Sjúkratrygginga Íslands segir að samstarfið við Akureyrarbæ hafi alltaf verið gott. „En nú skilja leiðir á þessum vettvangi. Við erum mjög ánægð með að HSN taki að sér rekstur þessarar öflugu einingar og teljum gæðum og öryggi þjónustunnar vel borgið þar meðan unnið er að framtíðarskipulagi þessara mála,“ segir María. 

„Öldrunarheimilin hafa verið þekkt fyrir nýsköpun og góða þjónustu við íbúana. Rekstur þeirra fellur vel að okkar starfsemi. Við teljum að við getum lært mikið af þeim og hlökkum til samstarfsins,“ segir Jón Helgi Björnsson forstjóri HSN. 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan