Halla Björk og Gunnar í viðtalstíma bæjarfulltrúa 12. september

Halla Björk Reynisdóttir og Gunnar Gíslason
Halla Björk Reynisdóttir og Gunnar Gíslason

Viðtalstímar bæjarfulltrúa eru haldnir tvisvar í mánuði á fimmtudögum frá kl. 17:00 til 19:00 á tímabilinu september til maí. Í viðtalstímum gefst bæjarbúum kostur á að hitta fulltrúa í bæjarstjórn og ræða þau málefni sem hæst ber hverju sinni.

Viðtalstímarnir eru í Ráðhúsinu, Geislagötu 9, 1. hæð. Fimmtudaginn 12. september verða bæjarfulltrúarnir Halla Björk Reynisdóttir og Gunnar Gíslason til skrafs og ráðagerða í fyrsta viðtalstíma þessa tímabils.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan