Hagahverfi – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu í Hagahverfi.


Skipulagsbreytingin nær til lóða við Margrétarhaga og Nonnahaga. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að einbýlishúsalóðunum við Margrétarhaga 14-18 og við Nonnahaga 6-10 verði breytt í raðhúsalóðir. Lóðir við Nonnahaga 1-3 verða sameinaðar í fjölbýlishúsalóð fyrir þjónustukjarna fyrir fatlaða og á Nonnahaga 5 verður heimilt að hafa þrjú lítil íbúðarhús. Lóðir nr. 7-21 við Nonnahaga minnka og fjölgar þar um eina einbýlishúsalóð.


Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 14. febrúar til 28. mars 2018, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt aðgengileg hér fyrir neðan.

Hagahverfi, tillaga að deiliskipulagsbreytingu


Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 28. mars 2018 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagssviðs Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagssvid@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.


14. febrúar 2018
Sviðsstjóri skipulagssviðs

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan