Hafnarstræti 34 – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu.

Skipulagssvæðið afmarkast af Hafnarstræti í vestri, Suðrubrú í norðri, Drottningabraut í austri og lóðum Hafnarstrætis nr. 30 og 32 í suðri. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að lóðinni er breytt í íbúðarhúsalóð, gert ráð fyrir að fjarlægja megi núverandi atvinnuhúsnæði og byggja í staðinn tvö íbúðarhús með allt að 8 íbúðum. Afmörkuð verða 8 ný bílastæði á lóðinni. Þá er einnig gert ráð fyrir að lóð spennistöðvar við Hafnarstræti 32 minnki þannig að núverandi gata og bílastæði verði utan hennar.

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð er til sýnis á 1. hæð í Ráðhúsi Akureyrarkaupstaðar frá 27. nóvember 2019 til 8. janúar 2020, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir.

Einnig er hægt að skoða tillöguna hér.

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 8. janúar 2020 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagssviðs Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagssvid@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

27. nóvember 2019
Sviðsstjóri skipulagssviðs

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan