Guðmundur Baldvin Guðmundsson og Sóley Björk Stefánsdóttir
Viðtalstímar bæjarfulltrúa eru haldnir tvisvar í mánuði á fimmtudögum frá kl. 17:00 til 19:00 á tímabilinu september til maí. Í viðtalstímum gefst bæjarbúum kostur á að hitta fulltrúa í bæjarstjórn og ræða þau málefni sem hæst ber hverju sinni.
Viðtalstímarnir eru í Ráðhúsinu, Geislagötu 9, 1. hæð. Fimmtudaginn 17. janúar verða bæjarfulltrúarnir Guðmundur Baldvin Guðmundsson og Sóley Björk Stefánsdóttir í Ráðhúsinu til skrafs og ráðagerða.