Grunn- og framhaldsskólanemar fá frítt í sund og á skíði í vetrarfríi grunnskóla á Akureyri

Akureyrarbær býður grunn- og framhaldsskólanemum frítt í sund og á skíði í vetrarfríi grunnskóla á Akureyri. Fimmtudaginn 2. mars geta grunn- og framhaldsskólanemar farið í skíðalyfturnar í Hlíðarfjalli án endurgjalds. Opið verður frá kl. 10-19. Athugið að krakkarnir þurfa að eiga rafrænt kort eða kaupa slíkt á 1.000 kr. í afgreiðslu Hlíðarfjalls. Áður en haldið er af stað er gott að kanna aðstæður á heimasíðu Hlíðarfjalls eða facebooksíðunni. 

Föstudaginn 3. mars geta grunn- og framhaldsskólanemar farið frítt í Sundlaugina á Akureyri (opið frá kl. 6.45-21.00), Glerárlaug (opið frá kl. 6.30-21.00) og sundlaugina í Hrísey (opið frá kl. 15-18). Frítt verður fyrir sama hóp í sundlaugina í Grímsey laugardaginn 4. mars (opið frá kl. 14-16).

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan