Gönguvika á Akureyri

Árleg gönguvika hefst í dag þar sem boðið er upp á kvöldgöngur um fjölbreytta staði í bæjarlandinu.

Gönguvikan er samvinnuverkefni Akureyrarstofu og Ferðafélags Akureyrar. Allar göngurnar byrja kl. 19.00 og taka á bilinu tvær til fjórar klukkustundir.

Þátttakendur eru hvattir til að skrá sig á heimasíðu Ferðafélags Akureyrar

Þetta er ellefta árið í röð sem gönguvikan er haldin og hefur aðsókn í göngurnar undanfarin ár verið mjög góð.

Allar nánari upplýsingar er að finna á visitakureyri.is

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan