Göngum vel um bæinn okkar

Akureyringar láta ekki sitt eftir liggja þegar kemur að því að kveðja gamla árið og fagna því nýja með flugeldum, blysum og alls kyns bombum.

Mikið af rusli fellur til eftir ljósaveisluna miklu og það eru vinsamleg tilmæli að notaðir og útbrunnir flugeldar verði settir við lóðarmörk þegar um hægist. Þeir verða síðan fjarlægðir af starfsmönnum bæjarins í upphafi nýs árs. 

Göngum vel um fallega bæinn okkar á gamlárskvöld sem og alla aðra daga ársins.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan