Göngugatan aðeins fyrir fótgangandi vegna veðurs

Mynd: Bjarki Freyr Brynjólfsson.
Mynd: Bjarki Freyr Brynjólfsson.

Alíslensk hitabylgja er nú á Akureyri og því hefur verið ákveðið að loka göngugötunni fyrir umferð vélknúinna ökutækja fyrr en ráð var fyrir gert. Götunni verður lokað fyrir bílaumferð frá kl. 13 í dag og síðan tekur við júlílokun sem er alla daga frá kl. 11-17. Í ágúst er göngugatan lokuð fimmtudaga, föstudaga og laugardaga frá kl. 11-17.

Vörumóttaka er ætluð utan þessa tíma.

Aðkoma fyrir ökutæki fatlaðs fólks að göngugötunni er að norðan, frá Brekkugötu. 

Allir sem vilja nota göngugötuna til leikja eða skemmtilegra viðburða í sumar eru hvattir til að láta slag standa og hafa samband við Akureyrarstofu sem veitir nánari upplýsingar. Netfangið er akureyrarstofa@akureyri.is

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan