Góð gjöf til leikskóla bæjarins

Freyja Rögnvaldsdóttir og Karl Frímannsson ásamt Freyju Rögnvaldsdóttur yngri.
Freyja Rögnvaldsdóttir og Karl Frímannsson ásamt Freyju Rögnvaldsdóttur yngri.

Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur færði nýverið öllum leikskólum Akureyrarbæjar gjöf með þjálfunarefninu "Lærum og leikum með hljóðin" sem er til þess ætlað að bæta framburð barna, auka orðaforða og undirbúa þau fyrir lestur og læsi almennt.

Bryndís hefur starfað í rúmlega 30 ár sem talmeinafræðingur og byggir námsefnið á fagþekkingu talmeinafræðinnar, rannsóknum og reynslu sinni af því að vinna með börnum, foreldrum og fagfólki í skólum. Efnið hefur hlotið ýmsar viðurkenningar og í samstarfi við IKEA, Lýsi, Marel og hjónin Björgólf Thor og Kristínu Ólafsdóttur mun Bryndís færa öllum leikskólum á Íslandi þjálfunarefnið eða um 250 skólum alls.

Það var Freyja Rögnvaldsdóttir sem afhenti gjöfina fyrir hönd Bryndísar sem Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs veitti viðtöku.

Starfsfólk leikskóla Akureyrarbæjar og skólayfirvöld þakka Bryndísi fyrir höfðinglega gjöf sem á örugglega eftir að nýtar börnum vel.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan