Gleðistund í Grímsey

Mynd: María Helena Tryggvadóttir.
Mynd: María Helena Tryggvadóttir.

Grímsey skartaði sínu fegursta í gær þegar heimamenn og fjöldi gesta komu saman í nýrri Miðgarðakirkju sem nú er fokheld. Þess var minnst að ár var frá því að Miðgarðakirkja, sem reist var 1867, brann til grunna ásamt öllum kirkjumunum og því fagnað að ný kirkja er risin. Kvenfélagið Baugur, sem í sitja allar konur í eynni, bauð síðan til veislukaffis í félagsheimilinu Múla. Auk þess buðu forsvarsmenn hinnar nýju Grímseyjarlestar til útsýnis- og skoðunarferðar um eyjuna.

Samkoman í kirkjunni var einstaklega hugljúf en með léttu yfirbragði. Sr. Oddur Bjarni Þorkelsson, sóknarprestur Miðgarðakirkju, lét ekki sitt eftir liggja og Friðrik Ómar Hjörleifsson, tónlistarmaður, var fyrstur til að taka lagið í hinni nýju kirkju. Hún er auk helgihalds hugsuð sem tónlistar- og menningarhús. Sr. Gísli Gunnarsson, nýkjörinn vígslubiskup að Hólum í Hjaltadal, minntist m.a þess að nú eru 800 ár frá því að Guðmundur góði Arason Hólabiskup kom til Grímseyjar á flótta undan Sturlungum. Í þeirri ferð vígði Guðmundur m.a stuðlaberg sem notað verður sem altari kirkjunnar.

Þá fluttu fyrrverandi sóknarprestar, þeir sr. Pálmi Matthíasson og sr. Magnús Gunnarsson, hugvekjandi orð og þökkuðu liðna tíma. Jafnframt færði Pálmi Miðgarðakirkju eina milljón króna frá söfnuði Bústaðakirkju. Þá lýsti Hjörleifur Stefánsson, arkitekt kirkjunnar, því hvernig hönnun hennar skírskotar til einstakrar sögu og náttúru Grímseyjar. Alfreð Garðarsson, formaður sóknarnefndar, og Arna Björg Bjarnadóttir, verkefnisstjóri kirkjubyggingar, komu jafnframt á framfæri þakklæti til allra þeirra, sem stutt hafa við kirkjubygginguna með einum eða öðrum hætti.

Smíði hinnar nýju kirkju hefur gengið vel þrátt fyrir tafir vegna slæmrar veðráttu í sumar. Á móti kemur að vel hefur viðrað í september og verkinu þá miðað afar vel áfram. Á næstu vikum mun Loftkastalinn, sem sér um smíði kirkjunnar, ljúka við að klæða hana að utan og leggja steinskífur úr stuðlabergi á þakið. Það er mál manna að um einstaklega vandaða smíði sé að ræða.

Sóknarnefnd Miðgarðakirkju mun á næstunni taka ákvörðun um hvenær haldið verður áfram með framkvæmdir en framvinda þeirra er háð þeim fjármunum sem safnast til verksins. Vonir standa til að í vetur takist að innrétta kirkjuna og vígja næsta sumar. Söfnun fyrir nýrri Miðgarðakirkju heldur því áfram og margir leggja þar hönd á plóg. Á morgun, föstudaginn 23. september kl. 17, verða til dæmis söfnunartónleikar í Hallgrímskirkju.

Hægt er að fylgjast með söfnun til Miðgarðakirkju á styrktarsíðu hennar, grimsey.is/kirkja
Söfnunarreikningur Miðgarðakirkju
Kennitala: 460269-2539
Reikningsnúmer: 565-04-250731

Myndirnar að neðan tók María Helena Tryggvadóttir í Grímsey í gær. Smellið á þær til að sjá stærri útgáfur og fletta á milli þeirra.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan