Gjaldskylda tekin upp á bílastæðum í miðbænum

Tillögur að gjaldsvæðum samkvæmt nýju fyrirkomlagi.
Tillögur að gjaldsvæðum samkvæmt nýju fyrirkomlagi.

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að taka upp gjaldskyldu á bílastæðum í miðbæ Akureyrar. Stefnt er að því að nýtt fyrirkomulag taki gildi í lok sumars.

Verkefnahópur sem var skipaður starfsfólki bæjarins, ásamt sérfræðingi frá Eflu, hefur kortlagt og undirbúið þessar breytingar undanfarna mánuði. Breytingarnar eru í samræmi við samstarfssáttmála bæjarstjórnar, sem liður í að stefna að sjálfbærum rekstri bæjarins, og eiga að stuðla að bættri nýtingu bílastæða í miðbænum.

Í stuttu máli fela tillögur hópsins í sér að tekin verði upp tvö gjaldsvæði þar sem í dag eru gjaldfrjáls klukkustæði. Gjaldskyldutíminn taki að mestu mið af núverandi gildistíma klukkustæða og verð stuðli að því að bílastæðanýting sé um 85%, sem samsvarar því að ávallt verði eitt til tvö laus stæði í hverjum götulegg/svæði. Lagt er til að gögnum um notkun verði safnað reglulega og beitt til að ákvarða gjaldskrá og stýra eftirspurn. Sama stefna var tekin upp hjá Reykjavíkurborg árið 2019 en almennt hefur sambærileg stefna verið útfærð víða erlendis.

Helstu markmið eru eftirfarandi:
• Bæta lífsgæði og skapa tækifæri fyrir fjölbreyttari notkun bæjarlands með því að stýra betur eftirspurn eftir bílastæðum.
• Draga úr umferð, umferðartöfum, útblæstri og hljóðmengun. Einnig að bæta umferðaröryggi fyrir aðra vegfarendur með því að draga úr fjölda ökumanna sem aka um og leita að lausum bílastæðum.
• Styðja við verslun og fyrirtæki, með því að auðvelda viðskiptavinum (íbúum og ferðamönnum), þjónustuaðilum og gestum að finna laus bílastæði.

Samhliða ofangreindum breytingum er gert ráð fyrir því að gjald fyrir fastleigustæði verði hækkað og að innleitt verði nýtt gjald fyrir bílastæðakort sem íbúar í miðbænum hafa hingað til fengið sér að kostnaðarlausu.

Stefnt er að því að nota nýjustu tækni við innheimtu gjalda með hjálp smáforrits þannig að fólk geti greitt í símanum, en einnig verða settir upp greiðslustaurar. Nánari upplýsingar og leiðbeiningar verða auglýstar vel þegar nær dregur.

Meirihluti bæjarráðs samþykkti innleiðingu á gjaldskyldu og fól bæjarlögmanni og sviðsstjóra fjársýslusviðs að útfæra tillögur að breytingum á samþykktum, gjaldskrá og reglum sem þarf í tengslum við innleiðinguna. Þessar tillögur verða síðan lagðar fram til staðfestingar og samþykktar í bæjarráði og bæjarstjórn.

Í þessari greinargerð er hægt að lesa nánar um stýringu bílastæða og gjaldskyldu. 

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan