Giljahverfi, Kiðagil – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 19. desember 2017 samþykkt að auglýsa tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir Giljahverfi, vegna Kiðagils skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Svæðið sem breytingum tekur nær til götunnar Kiðagils og lóðar Giljaskóla. Breytingin felst m.a. í því að komið er fyrir einni þrengingu og tveimur nýjum upphækkuðum gangbrautum yfir Kiðagil. Innkeyrslum og bílastæði Giljaskóla er breytt.

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð liggur frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 10. janúar til 21. febrúar 2018, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er aðgengileg hér að neðan:

Giljahverfi, Kiðagil - tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Frestur til að gera athugasemdir rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 21. febrúar 2018 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagssviðs Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagssvid@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

10. janúar 2018
Sviðsstjóri skipulagssviðs

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan