Davíð Þór Jónsson, The Visitors.
Sýningu á verki Ragnars Kjartanssonar, Gestirnir / The Visitors, lýkur á sunnudaginn í Listasafninu á Akureyri. Að því tilefni verður listamannaspjall sunnudaginn 17. september kl. 14. Þar mun Hlynur Hallsson, safnstjóri, ræða við Davíð Þór Jónsson, píanóleikara og annan tónlistarhöfund verksins. Listamannaspjallið er innifalið í aðgangseyri.
The Visitors hefur farið sigurför um helstu listasöfn heims og Listasafnið á Akureyri er engin undantekning því alls hafa tæplega 14.000 manns lagt leið sína í safnið og er um metaðsókn að ræða. Áhorfendur hafa sagt að töfrar búi í þessu verki og margir hafa komið aftur og aftur til að sjá það enda nær verkið til breiðs hóps sem skemmir ekki fyrir.
The Guardian valdi The Visitors besta listaverk 21. aldarinnar eftir að það var fyrst sett upp í Migrossafninu í Zürich árið 2012. Verkið hefur einungis einu sinni áður verið sýnt á Íslandi, í Kling og Bang árið 2013.
Um verkið
The Visitors er myndbandsverk á níu skjáum. Hópur vina og tónlistarmanna safnast saman á hinu hnignandi Rokeby Farm í Upstate New York og verður vettvangur þess sem Ragnar kallar feminískt, níhilískt gospel lag: marglaga portrett af vinum listamannsins, könnun á möguleikum tónlistar í kvikmyndaforminu og dregur titil sinn af síðustu plötu ABBA, The Visitors, sem mörkuð var aðskilnaði og ósigri. Lagið er samið við textabrot úr myndbandsverkum og gjörningum Ásdísar Sifjar Gunnarsdóttur. Tónlistarfólkið sem fram kemur í verkinu eru Davíð Þór Jónsson, Gyða Valtýsdóttir, Kristín Anna Valtýsdóttir, Ólafur Jónsson, Þorvaldur Gröndal, Shahzad Ismaili, Ragnar Kjartansson og Kjartan Sveinsson.
Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Listasafnsins á listak.is.