Gerum gott hverfi: Hugmyndasöfnun vegna Kollugerðishaga

Mynd af svæðinu eins og það er í dag.
Mynd af svæðinu eins og það er í dag.

Akureyrarbær býður íbúum að taka þátt í að móta fyrirhugað íbúðasvæði vestan Borgarbrautar í Síðuhverfi. Hugmyndasöfnun hefst í dag og eru íbúar hvattir til að taka þátt í gegnum rafræna samráðsvettvanginn okkar Akureyrarbæ.

Vinna við deiliskipulag fyrir nýtt uppbyggingarsvæði, Kollugerðishaga, er að hefjast og samhliða verður gerð breyting á Aðalskipulagi. Gert er ráð fyrir um 750 íbúðum í grænu, vistvænu og nútímalegu hverfi þar sem sjálfbærni er höfð að leiðarljósi. Í síðustu viku var kynnt lýsing á verkefninu sem er fyrsta skref í skipulagsferlinu. Nánar hér.

Smelltu hér til að skoða vefsvæði þar sem eru allar helstu upplýsingar um verkefnið og hvernig hægt er að hafa áhrif á framtíðaruppbyggingu.

Markmiðið er að búa til gott hverfi í samráði við íbúa og þess vegna óskum við eftir hugmyndum í gegnum nýjan og rafrænan samráðsvettvang. Okkar Akureyrarbær er samráðsvettvangur sem er hluti af Betra Íslandi. Kerfinu er ætlað að hvetja til lýðræðislegrar þátttöku íbúa og er ætlunin að þarna geti Akureyringar sett fram hugmyndir og haft áhrif á málefni sem snúa að þjónustu, starfsemi og rekstri sveitarfélagsins. Hugmyndasöfnun vegna Kollugerðishaga undir yfirskriftinni Gerum gott hverfi er frumraun Akureyrarbæjar á þessu sviði og er liður í aukinni áherslu bæjarins á íbúasamráð.  

Hugmyndir geta meðal annars snúið að byggingum, samgöngum, opnum svæðum, þjónustu, afþreyingarmöguleikum eða einhverju allt öðru. Gagnlegt getur verið að móta hugmyndir eða tillögur út frá sjálfum sér og sínu nærumhverfi; hvað er gott og hvað mætti vera betra í þínu hverfi?

Einnig er hægt að styðja hugmyndir annarra, taka þátt í umræðum um hugmyndir, setja fram rök með og á móti og fleira. Vonast er til að þarna komi fram margar góðar og gagnlegar hugmyndir og umræður.

Hægt er að senda inn hugmyndir til og með 31. maí og koma þær allar til skoðunar við gerð skipulagsins.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan