Fyrsta skóflustungan tekin að Garðinum hans Gústa

Í hádeginu var fyrsta skóflustungan að Garðinum hans Gústa tekin að viðstöddu fjölmenni. Það voru dætur Ágústs heitins og Guðrúnar Gísladóttur, þær Ásgerður Jana og Berglind Eva Ágústsdætur sem munduðu skófluna í sameiningu. Meðal viðstaddra voru meðal annars fjölskylda og vinir Ágústs og bæjarstjórinn á Akureyri.

Garðurinn hans Gústa er körfuboltavöllur sem mun rísa norðan við B-álmu Glerárskóla. Sett verður upp girðing umhverfis völlinn og meðfram norðurhlið vallarins verður svæði fyrir áhorfendabekki og gróðurbelti. Umsjón með uppsetningu og framkvæmd verður hjá vinum Ágústs H. Guðmundssonar í nánu samstarfi við Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar.

Á Facebook síðu verkefnisins „Garðinum hans Gústa" segir meðal annars að „Ágúst hafi verið mikill körfuknattleiksunnandi og markað djúp spor í sögu íþróttarinnar hér í bæ. Ásamt því að spila á sínum yngri árum fyrir Þór var Ágúst þjálfari hjá félaginu til fjölda ára og er sigursælasti þjálfari þess frá upphafi. Flestar æfingar og leiki þjálfaði Ágúst í íþróttahúsinu við Glerárskóla og því finnst okkur við hæfi að völlurinn rísi við þann skóla. Ágúst var harður Boston Celtics aðdáandi og því lá það beinast við að körfuboltavöllurinn fengi nafnið Garðurinn en heimavöllur Boston Celtics kallast TD Garden."

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan