Fyrsta skóflustunga að nýjum leikskóla

Ingibjörg, Guðmundur Baldvin og Halla Björk taka fyrstu skóflustungurnar.
Ingibjörg, Guðmundur Baldvin og Halla Björk taka fyrstu skóflustungurnar.

Í dag var tekin fyrsta skóflustunga að leikskólanum Klöppum við Glerárskóla á Akureyri. Leikskólinn verður alls um 1.450 fermetrar á tveimur hæðum og verður innangengt yfir í grunnskóla og íþróttamiðstöð.

Gert er ráð fyrir sjö deilda leikskóla með 144 rýmum, þar af ungbarnadeild, og er fyrirhugað að með tilkomu skólans verði hægt að bjóða öllum börnum 12 mánaða og eldri leikskólavist.

Verklegar framkvæmdir voru boðnar út í heild sinni í febrúar 2020. Jarðvinna, lóðarvinna og allur frágangur að innan og utan er hluti af verkinu. Gengið var til samninga við lægstbjóðanda, Byggingarfélagið Hyrnu.

Áætlaður kostnaður er um einn milljarður króna og er stefnt að verklokum í ágúst 2021.

Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður bæjarráðs, Ingibjörg Isaksen, formaður fræðsluráðs, og Halla Björk Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnar, tóku fyrstu skóflustungurnar að sjálfsögðu með tveggja metra millibili í ljósi aðstæðna.

Frekari fjárfestingar í farvatninu

Bygging leikskólans er kærkomin innspýting í atvinnulífið og liður í viðspyrnu vegna efnahagsástandsins af völdum Covid-19, enda er ljóst að margir munu koma að framkvæmdunum á næstu mánuðum.

Í aðgerðaáætlun Akureyrarbæjar til að mæta efnahagslegum og samfélagslegum áhrifum faraldursins er lögð áhersla á að framkvæmdir ársins gangi eftir, en í fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir 4,4 milljörðum króna í fjárfestingar 2020.

Sömuleiðis er stefnan að flýta viðhaldi á vegum bæjarins og liðka fyrir framkvæmdum í samvinnu við ríkið, en þar eru stór verkefni í farvatninu. Samkomulag hefur náðst við stjórnvöld um uppbyggingu hjúkrunarheimilis, auk þess sem undirbúningur tveggja nýrra heilsugæslustöðva og legudeilda við SAk er að hefjast fyrir alvöru. Þá hefur verið ákveðið að ráðast í miklar framkvæmdir við stækkun á flugstöð og flughlaði á Akureyri á næstu mánuðum.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan