Fyrirlestur um eitthvað fallegt

Úr sýningunni.
Úr sýningunni.

Í dag og á morgun mæta 1.186 nemendur í 8.–10. bekk úr 19 grunnskólum á Norðurlandi í Hof á sýninguna Fyrirlestur um eitthvað fallegt. Viðburðurinn er í boði List fyrir alla og í samstarfi við MAK og Akureyrarbæ.

Í sýningunni kynnumst við Baldri sem er að hefja fyrirlestur um nýjasta listaverk sitt. Hann finnur að eitthvað er ekki eins og það á að vera... hann frýs. Hann er að fá sitt fyrsta kvíðakast. Yfir hann hellist ótti og við fylgjumst með honum leita lausna. Við kynnumst líka öllum hinum Böldrunum, því kvíði býr í okkur öllum. Fimm leikarar túlka mörg andlit kvíðans, í sjónrænu, gamansömu leikverki. Leikararnir eru Agnes Wild, Guðmundur Felixson, Kjartan Darri Kristjánsson, Bjarni Snæbjörnsson og Sara Martí sem einnig er leikstjóri sýningarinnar. Höfundur er SmartíLab-hópurinn.

Rannsóknir sýna að á hverju ári þjáist um 12% Íslendinga af óeðlilegum eða sjúklegum kvíða. Leikverkið fjallar á gamansaman hátt um þetta erfiða málefni, með það að markmiði að vekja fólk til meðvitundar og opna umræðuna um geðheilbrigði á Íslandi enn frekar.

Í verkinu er kvíðinn skoðaður frá ýmsum sjónarhornum og kafað í tilfinningar, hugsanir, magaverki, samfélagsmiðla, geðlyf, svefntruflanir, sjálfsþekkingu, sigra, bata, hugarangur, sálarfrið og kvíðaofurhetjur.

List fyrir alla er á forræði mennta- og menningarmálaráðuneytis og er ætlað að velja og miðla listviðburðum til barna og ungmenna um land allt og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag.

Listviðburðirnir eru í öllum tilfellum unnir af fagfólki og leitast er við að gera allar listgreinar sýnilegar innan verkefnisins eins og kostur er.

Höfuðáhersla er lögð á list fyrir börn og list með börnum.

Höfundur: SmartíLab-hópurinn
Leikstjórn: Sara Martí
Framkvæmdastjórn: Martin L. Sörensen
Leikmynd og búningar: Brynja Björnsdóttir
Ljósahönnun: Arnar Ingvarsson
Leikarar: Agnes Wild, Guðmundur Felixson, Kjartan Darri Kristjánsson, Sara Martí, Bjarni Snæbjörnsson
Hljóðmynd og myndbönd: SmartíLab-hópurinn
Grafísk hönnun og umbrot: Martin L. Sörensen
Ljósmyndir: Ásgeir Ásgeirsson

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan