Uppbygging á Drottningarbrautarreit

Tillögur þróunaraðila. Mynd úr greinargerð vegna skipulagsbreytingarinnar.
Tillögur þróunaraðila. Mynd úr greinargerð vegna skipulagsbreytingarinnar.

Tillaga að skipulagsbreytingu vegna uppbyggingar syðst á Drottningarbrautarreit hefur verið auglýst. Stefnt er að því að byggja 60-70 nýjar íbúðir á svæðinu, auk íbúðahótels með 16-20 íbúðum og verslunar- og þjónustustarfsemi á neðstu hæð.

Hér er hægt að skoða auglýsta tillögu að deiliskipulagsbreytingu og helstu gögn. 

Breytingin nær til Hafnarstrætis 80 og 82 og Austurbrúar 10-12 og felur í stuttu máli í sér:

  • Samkvæmt núgildandi skipulagi er gert ráð fyrir stóru hóteli á svæðinu en lagt er til breyta því og fjölga íbúðum í staðinn.
  • Gert ráð fyrir að aukinni hámarkshæð húsa við Austurbrú.
  • Lagt er til að fyrirhuguð viðbygging við Hafnarstræti 82 verði sunnan við húsið en þannig myndast torg að norðanverðu sem tengir Hafnarstræti inn í nýju byggðina.
  • Gatan á milli Hafnarstrætis 80 og Austurbrúar 10-12 verði felld niður og í staðinn verður gönguleið og garðar milli húsa.

Skipulagsráð heimilaði þróunaraðilanum Luxor ehf. að vinna að gerð breytingar á deiliskipulagi þann 10. febrúar sl. í samræmi við tillögur að uppbyggingu. Markmiðið er að reiturinn verði til þess að styrkja stöðu miðbæjarins sem þungamiðju menningar, verslunar og þjónustu. Lögð er áhersla á að yfirbragð nýbygginga falli vel að núverandi byggð og bæjarmynd.

Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti á síðasta fundi sínum með 11 samhljóða atkvæðum að auglýsa tillögu að deiliskipulagsbreytingu vegna uppbyggingarinnar.
Íbúar eru hvattir til að kynna sér málið en frestur til að gera athugasemdir rennur út 23. júní. Nánar hér.

Nokkrar myndir af tillögum þróunaraðila sem liggja til grundvallar deiliskipulagsbreytingunni:

 

  

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan