Fundur í bæjarstjórn þriðjudaginn 21. september

Menningarhúsið Hof
Mynd: Auðunn Níelsson
Menningarhúsið Hof
Mynd: Auðunn Níelsson

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 21. september. Á dagskránni er meðal annars árshlutauppgjör bæjarins janúar-júní 2021, viðauki við fjárhagsáætlun, breytingar á reglum um styrki til náms, verkfæra- og tækjakaupa, umræða um íþróttastefnu Akureyrarbæjar og umræða um sumarlokun göngugötu.

Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.

Fundurinn verður haldinn í Hömrum i Hofi og er öllum opinn. Sjónvarpað er frá fundinum daginn eftir, miðvikudaginn 22. september kl. 14:00, á sjónvarpsstöðinni N4.

Hér má finna upptökur og streymi frá bæjarstjórnarfundum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan