Ráðhús Akureyrarbæjar
Bæjarstjórn Akureyrar kemur saman til fundar kl. 16 þriðjudaginn 20. mars.
Á dagskrá fundarins er meðal annars umræða um deiliskipulag Hesjuvalla, reglur um sérstakan húsnæðisstuðning, heimilislaust fólk á Akureyri og starfsáætlun og stefnuumræðu skipulagsráðs. Sjá dagskrá fundarins í heild sinni.
Fundurinn verður haldinn í bæjarstjórnarsalnum í Geislagötu 9, 4. hæð og er öllum opinn. Sjónvarpað er frá fundinum daginn eftir, miðvikudaginn 21. mars kl. 14.00 á sjónvarpsstöðinni N4. Upptökur frá bæjarstjórnarfundum má nálgast hér.